Kominn tími á nýtt blog frá Malapascua.
Eftir síðasta blogg héldum við til Cebu city til að skoða okkur um í stór borginni. Lögðum af stað uppúr átta og vorum kominn til Cebu í hádeiginu. Fundum okkur fínasta hótel og skoðuðum síðan helstu verslunar miðstöðvarnar þar sem við fundum allar nauðsynjar sem okkur vantaði. Gátum líka gúffað í okkur skyndibita þarna sem er fín tilbreyting frá svína og hænukjötinu sem hefur verið efst á matseðlinum síðastu 5 vikur. Um kvöldið var ég síðan hálf veikur, líklega útaf öllum loftkældu búðunum sem við fórum í, fínt samt að komast í heita sturtu. Fórum snemma að sofa og ákvaðum að fara aftur til Malapascua daginn eftir útaf við fundum allt sem við þurftum á einum deigi. Þannig ekki vorum við að eyða of miklum tíma í borginni í þetta skipti.
Síðan við komum til baka höfum við kafað helling og erum líka búinn með öll bóklegu prófinn þannig það er farið að styttast í endan á námskeiðinu. Erum líka byrjuð að kortleggja köfunarstað sem er hluti af námskeiðinu. Verðum að skila inn nákvæmu korti með dýptum og hvað er hægt að sjá, skemmtilegt verkefni að mínu mati. Í fyrstu korta köfuninni okkar fann ég köfunar vasaljós á botninum sem kemur sér vel þegar maður fer í næturkafanir, þarf allavega ekki að fá lánað lengur. Um síðustu helgi var verið að útskrifa 5 divemaster nema þannig núna er bara ég, inga og maggi danski eftir að læra. Síðasta prófið sem maður þarf að leysa er svokallað snorkel test þar sem þarf að drekka ógeðisdrykk í gegnum snorkl (öndunarpípu?). Get ekki sagt að mér hlakki til að taka þetta próf því það er öllu blandað í þetta Ekki nóg að þurfa þamba hálfan lítra ef sterku áfengi heldur að það bragðbætt með hráu eggi, tabasco sósu og öðrum óþverra. Allir stóðust þó prófið og urðu nátturlega húrrandi fullir fyrir vikið. Kvöldið endaði reyndar í blóðugum slagsmálum á milli Lettneska stráksins og kanadísk strák sem var hérna með okkur í nokkra daga að kafa. Sá lettneski breytist sýnilega í allvöru austur evrópu búa eftir óhöflega drykkju. Ætlaði að lemja allt og alla þetta kvöld. Eftir herlegheitin fóru allir strákarnir til Cebu þannig við vorum 2 eftir til að hjálpa til. Inga aðstoði einn kennarann við Open Water námskeið á föstudag og laugardag meðan að ég fór og kafaði með túristahópum. Í gær fengum við svo það verkefni að vera með upprifjunarnámskeið fyrir fólk sem hefur ekki kafað í nokkur ár. Þá er það í okkar höndum að kynna fyrir þeim uppá nýtt allan búnað og fara með þau í neðansjávaræfingar, oftast er þetta gert seinna í náminu okkar en við nýtum hvert tækifæri sem gefst. Strákurinn sem ég var að kenna var Svíi sem var ekki búin að kafa í 5 ár en Inga fékk danska konu sem var ekki búin að kafa í 14 ár og var því eiginlega bara eins og byrjandi. Þetta var krefjandi en skemmtilegt að kenna í alvöru aðstæðum og við erum hinu bestu kennarar, fengum allaveganna gott hrós frá nemundum okkar.
Núna eigum við bara eftir að hjálpa við að kenna á fleiri námskeiðum, taka próf í neðarsjávar æfingum, synda 800 m , klára kortið og þá ættum við að vera búinn. Stefnum á að klára í kringum 12 apríl svo við getum tekið c.a 10 daga í að ferðast aðeins um áður en við fljúgum til Malasíu 22 apríl. Tíminn er alltof fljótur að líða hérna, fynnst eins og það hafi bara verið í gær sem við yfirgáfum ísland í lok nóvember. Síðustu daganna erum við að spá að fara á næstu eyju við Cebu eyjunna sem heitir Leyte. Ætlum að reyna að kafa aðeins þar því það á víst að vera smá falinn perla sem ekki margir vita um plús að það er möguleiki að sjá Whale shark þar sem eru stærstu hákarlar í heimi. Maggi danski er jafnvel að spá að koma með okkur sem verður gaman, fínasti peyji þar á ferð. Þegar við lendum í Malasíu verður bara að koma í ljós hvað innistæðan í bankanum leyfir okkur að ferðast um þar. Væri flott að ná 3 vikum í Malasíu eða Indonesiu til klára síðustu krónurnar. Er líka búinn að taka slatta af myndum en snúran til setja myndirnar inn í tölvuna neitar að virka. Verð að finna mér kortalesara til að setja myndirnar inn þannig vonandi koma nýjar myndir fljótlega. Endilega skilið eftir kveðju til okkar……
Kveðjur Kristján og Inga
Halló kærustupar!
Nýt þess í botn að fylgjast með ykkur og lesa mjög svo skemmtilegt blogg. Öllum á frakkastígnum blessast vel og Álfrún er farinn að taka fyrir okkur nokkur skref en það er voða sparí enn sem komið er.
hlökkum til að sjá ykkur og lesa næsta blogg. kv. Ragnar, Dagný og Álfrún og nýi bumbubúinn.
Gaman að heyra og sjá hvað þið eruð að upplifa. En nú fer að styttast í heimkomu ykkar. Hér er talið niður rétt eins og til jóla. Hlökkum mikið til.
Góðar kveðjur frá okkur öllum.
Heey!!
gaman að sjá ævintýrin ykkar!
ég sit hérna í frönsku ölpunum í þvílíkt næs veðri og bara gaman, er að fara á skíði eftir smá þegar litla baby vaknar!
væri nú alveg til í að vera að kafa samt!
hlakka mikið til að sjá ykkur þegar við erum öll komin heim til íslands!
Alltaf gaman að lesa bloggið frá ykkur. Frábært hvað köfunin gengur vel hjá ykkur og að það er farið að styttast í að þið komið heim.
Kveðja mamma og pabbi Hveró.
Kallinn hérna. Var að renna yfir myndirnar frá ykkur og það er hreint ótrúlegur fjöldi af fisktegundum sem þið sjáið með alla sýna litadýr og mynstur. Svo maður tali nú ekki um hákarlana og baneitraðan snák. Glæsilegar myndir sem gaman er fyrir ykkur að eiga upp á seinni tíma.
Þá er það bara lokaspretturinn eftir, gangi ykkur vel í því sem eftir er og eitt að lokum “Ljúft við lifum.”
Gaman að fylgjast með ykkur. Erum farin að sakna ykkar. Knús frá Líf og Steinu
Gaman að lesa bloggið hjá ykkur
hlakka til að fá ykkur heim og njótið síðustu dagana:)
gaman að þessu… um að gera að finna sem fleska fiska sem geta étið ykkur