Lærdómur og kafanir.

Tíminn er ótrúlega fljótur að líða þegar það er skemmtilegt, eins og hendi væri veifað þá erum við búinn að vera hérna í næstum 3 vikur. Inga fór í Advanced námskeiðið sitt og rúllaði því upp með 5 köfunum. Á meðan var ég bara að kafa mér til gagns og gaman, fór í hákarlaköfun þar sem ég reyndar sá ekki hákarl, fór í dagsferð þar sem ég kafaði í flak af gömlu farþega skipi og kringum eyju. Daginn eftir voru síðan fleiri kafanir áður en Inga kláraði námskeiðið sitt svo við gátum byrjað á skyndihjálparnámskeiði saman. Þegar það var búið (tók 1 dag) fórum við beint í Rescue diver námskeið sem tók nokkra daga. Ekki mikið um alvöru kafanir á þessum tíma en við fórum samt í eina morgunköfun. Alla morgna hérna er kafað til að reyna sjá thresher shark, kafað niður á 22 metra og beðið eftir því hvort þeir koma inn á rifið til að fá hreinsun frá sérstökum hreinsunarfiskum. Þennan morgun vorum við búinn að bíða og bíða þar til rétt áður en við þurftum að fara aftur upp þá kom einn syndandi rétt fyrir aftan okkur. Sáum hann ekki fyrren hann var beint fyrir aftan okkur, 3 metra kvikindi sem synti líklega 4-5 m frá okkur sultuslakur. Synti framhjá okkur og eitthvað út í bláinn, stundum koma þeir aftur en við sáum hann ekki aftur þennan daginn, vonandi sjáum við fleiri hans líka sem fyrst.

Höfum farið 2svar eftir þetta, ég sá einn í eitt skiptið en bara útlínur þar sem hann var svo langt í burtu. Í seinna skiptið sáum við ekkert en förum aftur í fyrramálið og vonandi sjáum við þá. Fórum líka í geggjaða næturköfun þar sem mandarine fish voru í aðalhlutverki, koma fram út kórölunum rétt fyrir sólsetur og setja á svið eins konar danssýningu til að berjast um hylli kvenkynsins. Ekki stærri en 3 tommur og svakalega litríkir, hægt að skoða myndir af þeim á myndasíðunni. Myndavélin varð batterílaus við að taka myndir af þeim sem var allveg týpískt því seinna sáum við helling af allskonar kröbbum, sæhestum og rúsínan í pylsuendanum var bluering octupuss sem er agnar smár kolkrabbi allsetur sjálflýsandi bláum hringjum og baneitraður. Ekki algengir hérna um slóðir en vonandi sjáum við annan slíkan aftur þegar myndavélinn verður full hlaðin.

Kíktum líka á hanslag sem eru alltaf á sunnudögum hérna. Reglunar eru einfaldar þar sem hanarnir berjast yfirleit til dauða eða þar til annar þeirra gefst upp og flýr. Ekkert sérstaklega góða meðferð á dýrunum en heimamenn sjá ekkert athugavert við þetta plús að þetta er mikil félagsleg samkoma fyrir eyjaskeggja til að hittast. Ég lagði undir á myndarlega hvítan hana en hann tapaði því miður, lifði reyndar af en reyndi að flýja sem er sama og dauði. Ég fór því heim 300 kr fátækari en reynslunni ríkari, aldrei veðja á hvítan hana aftur. Nokkrar myndir af þessu líka á myndasíðunni. Eftir að fara uppá meginlandið til að fá vottorð frá lækni fengum við grænt ljós til að byrja á divemaster námskeiðinu okkar. Þessa dagana erum við bara í bóklegu námi að læra allskonar hluti um köfun. Allt sem við erum að læra er kennt eftir PADI standard og þar sem PADI er ultra amerískt fyrirtæki er allt námsefnið mjög amerískt og miðað við að fólkið sem sé að læra séu heilalausir amríkanar. Þetta er allavega okkar fyrstu kynni af bóklega hlutanum þó það sé auðvitað hellingur af mjög nytsamlegu efni þarna inn á milli. Það eru 8 aðrir krakkar hérna að læra divemaster sem er mjög góður hópur og náum við öll vel saman. Kennarinn eru líka skemmtilegir en eina fólkið sem við erum ekki allveg sátt með er fólkið sem á sjoppuna og stjórnar þessu apaspilli. Vonandi lagast það samt með tímanum.

Það verður nóg að gera næstu vikunar hjá okkur: Bókleg próf, nokkur sundpróf, allskonar neðansjávar verkefni, hjálp við kennslu og vonandi kemur maður einhverjum skemmtiköfunnum að inn á milli. Vonandi nást líka myndir af Tresher shark, læt fylgja eitt video af Thresher shark sem ég fann á youtube.

Kveðjur frá Malapascua

Kristján og Inga

3 Responses to Lærdómur og kafanir.

  1. Helga mamma says:

    Flottar myndirnar úr köfununum. Alltaf gaman að lesa bloggið ykkar. Góða skemmtun áfram og gangi ykkur vel í prófum.

  2. Kjartan says:

    Loksins færsla frá ferðalingum, þetta er eins og að bíða eftir þætti í sjónvarpinu :)

    take care bye bye then

  3. Eydís mamma segir: says:

    Er ekki alveg nóg að sjá þennan hákarl einu sinni þurfið þið nokkuð að eiga frekari stefnumót við hann, úff. En annars gangi ykkur vel áfram og við kannski heyrumst og sjáumst á Skype um helgina.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.