Jæja komin tími á smá fréttir frá Malapascua, tíminn er ekkert smá fljótur að líða en það er líka búið að vera mikið að gera hjá okkur og flest allir daga fullir af nýjum verkefnum….
Í byrjun mars vorum við í miklu bóklegu og tókum meðal annars Thresher Shark speciality course þar sem við fræddumst um hákarla, hegðun og atferli þeirra og svo var farið ítarlega í Thresher hákarlinn þannig núna getum við kyn og tegunda greint þá ásamt fleirru, mjög fræðandi og skemmtilegt námskeið sem var fínt að taka svona til hliðar. Þessu fylgdi líka 2 hákarlakafanir en við vorum það óheppinn að þessa daga voru hákarlarnir ekki sjáanlegir þannig við gátum ekki prufað að kyngreina Thresherinn í þetta skiptið…
Næsta vika snérist mikið um bókleg próf og við tókum heil 3 próf með trompi! Engin einkunn lærri en 85% en þeir eru nú ekkert að taka þessi próf of alvarlega og er ekki mikið stress í kringum þau. Fínt að klára allt bóklega sem fyrst til að eiga allt það skemmtilega eftir! Fórum líka í þónokkrar kafanir en Inga fékk smá flensu í 2 daga þannig hún missti aðeins úr eða 1 dag. Einn strákurinn sem er hérna að læra með okkur ákvað að fá sér rúnt á vespunni sinni eftir að hafa setið heila kvöldstund með Tanduay (filipino romm) um hönd. Hann komst ekki nema 30 metra áður en hann klessti á vegg og þurfti að flytja hann á sjúkrahús á meginlandinu með risaskurð á hausnum. Hann er kominn til baka núna viku seinna en verður því miður að fara heim útaf það er bannað að kafa eftir mikla höfuðáverka og verður hann að klára sitt námskeið í Englandi. Svekkjandi fyrir hann en hann fær þann vafasama heiður að hafa lent líklega fyrsta umferðaslys í sögu Malapascua.
Erum líka búinn að fara í 2 dagsferðir á aðrar eyjur hérna í nágrenninu, bara divemaster nemarnir saman. Fyrst fórum við á eyju sem heitir Carnaza og köfuðum við 2svar, mjög góður köfunarstaður, flottir kóralar og fiskar sem við höfum ekki séð áður. Fórum síðan til Calangaman island sem er djásnið af köfunarstöðunum hérna. Frábært visibility ( hversu langt maður sér neðansjávar) og stórir hópar af allskonar fiskum. Köfuðum meðfram risastórum neðansjávar klettavegg þar sem maður sá heilu torfunar bæði fyrir neðan sig og ofan. Á 30 metra dýpi gat maður séð í botninn sem er á umþað bil 90 metra dýpi! Lá við að maður yrði lofthræddur þarna. Hittum líka 2 nokkuð stóra kolkrabba sem skiptu um lit um leið og þeir urði varir við mannaferðir, að mínu mati ein af mögnuðustu skepnum sem búa í hafinu. Síðan var eyja líka frábær, hvítar sandstrendur og pálmatré. Sannkallað póstkortamyndaefni enda eru nokkrar myndir frá þessu á myndasíðunni okkar. Frábær dagur og vonandi getum við farið aftur þangað áður en við yfirgefum Malapascua.
Í dag fórum við í hákarla köfuna sem er á hverjum morgni. Vorum ekki búinn að bíða lengi þegar einn rúmlega 3 metra birtist og fór að hringsóla fyrir framan okkur. Hann var aðeins 2 m í burtu frá okkur og við biðum bara eftir því að hann myndi bókstaflega synda á okkur. Thresher sharks koma alltaf upp í grynningarnar (22m) á hverjum morgni til að fá hreinsun frá fiskum sem lifa á bakteríum sem taka sér bólfestu á skinni hákarla. Þetta er win win dæmi, bæði fyrir hákarla og hreinsunarfiskinn þar sem hákarlinn losnar við bakteríur og hreinsunarfiskurinn fær auðvelda máltíð. Þegar lífið gat ekki orðið mikið betra með hákarlinn beint fyrir framan okkur komu 2 eagle rays (risa skötur) syndandi framhjá. Þvílíkt combo! Er orðin mikill aðdáandi af stórum sjávarlífverum, því stærra því betra. Fórum í aðra köfun þar sem við sáum meðal annars frogfish í fyrsta skipti og einhverskonar klóarlausan humar, alltaf sér maður eitthvað nýtt. Í báðum þessum köfunum vorum við að fylgja local divemasterum og læra í leiðinni hvernig á að leiða kafanir. Ekki amarlegt verknám….. Kláruðum daginn síðan með eðlisfræði prófi og eigum því bara eitt bóklegt próf eftir. Höfum líka lokið við 2 af 4 sundprófum, þar á meðal 400 metra sund undir 11 mín sem þykir hvað erfiðast.
Ætlum að skella okkur til Cebu city á morgunn og skoða okkur um í stórborginni. Verður fínt að skola sandinn úr rassaskorunni í heitri sturtu og jafnvel gista nótt á hóteli með air con. Megum ekki stopa of lengi í Cebu því í morgunn sáust 20 hammerhead hákarlar sem gefur til kynna að þeir séu mættir til Malapascua. Aðal hammerhead (hamarshaus?) tímabillið er í apríl þannig við vonumst eftir að geta kafað með þeim fljótlega.
Endilega skilið eftir kveðju, alltaf gaman af góðum kveðjum.
Kveðja Kristján og Inga
Kristján & Inga skrifaði